Starfsemi
Starfsemi í Borgarleikhúsinu í dag
Fjármál, áhorfendur
Leikfélag Reykjavíkur ses. annast rekstur Borgarleikhússins samkvæmt sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg. Heildar velta félagsins síðastliðins rekstrarárs var 913 mkr. þar af nam rekstrarframlag Reykjavíkurborgar 423 mkr. (46% af veltu) og sjálfsaflafé því 490 mkr. (54% af veltu). Undanfarin ár hefur hlutfall sjálfsaflafjár verið mjög hátt samanborið við sambærilegar listastofnanir hérlendis og erlendis. Sjálfsaflafé teljast tekjur af miðasölu, útleigu, veitingasölu, markaðssamstarfi ofl.
Langstærsti gjaldliðurinn í rekstri leikhússins er launagreiðslur, um það bil 70% og að jafnaði eru um 120 starfsmenn starfandi hjá leikhúsinu á hverjum tíma en til viðbótar telst fjöldi lausráðinna starfsmanna. Árið 2010 voru allt um 300 manns á launaskrá hjá Borgarleikhúsinu. Gestir Borgarleikhússins leikárið 2007/08 voru 176.000, 2008/09 voru þeir 208.000, 2009/10 voru þeir 211.000 og 2010/11 215.000. (Heildar fjöldi gesta á alla viðburði í Borgarleikhúsinu.)
Skyldur
Leikfélagið á að gangast fyrir öflugri og samfelldri menningarstarfsemi árið um kring í Borgarleikhúsinu, á eigin vegum, í samstarfi við aðra eða með öðrum hætti sem tryggir góða nýtingu hússins.
Leikfélagið skal setja upp fimm leiksýningar á ári hverju hið minnsta og tryggja að minnsta kosti tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði Borgarleikhússins til æfinga og sýninga. Auglýsa skal opinberlega eftir umsóknum leikhópa fyrir 1. mars ár hvert.
Verkefnaval
Verkefnaval Borgarleikhússins er fjölbreytt. Grunnurinn liggur í samþykktum félagsins, samningi við Reykjavíkurborg og stefnumótun Borgarleikhússins hverju sinni undir forystu leikhússtjóra. Hann stýrir verkefnavali en með virki þátttöku listrænna ráðunauta sem og starfsmanna hússins, gjarnan með verkefnavalsnefnd og reglulegum leiklestrum. Stjórn LR samþykkir verkefnaval leikárs vorið á undan.
Meginsjónarmiðin í verkefnavali LR eru að verkin séu framúrskarandi, hvert á sinn hátt, innihaldsrík og eigi mikilvægt erindi við samtímann og áhorfendur Borgarleikhússins, - í gamni sem alvöru. Í heild er stefnt að fjölbreyttu og litríku verkefnavali, metnaðarfullu, sterku og ekki síst vönduðu.
Sviðin í húsinu fá ólíka áferð, á Stóra sviði er lögð áhersla á stórsýningar, Nýja sviðið er vettvangur áleitnari verkefna og á Litla sviðinu er mikið lagt upp úr áherslu á nálægð milli leikara og áhorfenda.
Stjórnskipulag, stjórn og helstu stjórnendur
Leikfélag Reykjavíkur er sjálfseignarstofnun og byggir á lögum um sjálfseignarstofnanir. Stjórn Leikfélags Reykjavíkur ber ábyrgð á rekstri Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhúss en ræður leikhússtjóra sem stýrir leikhúsinu í umboði stjórnar. Stjórnin ræður einnig framkvæmdastjóra sem ber ábyrgð á fjármálum og rekstri leikhússins.
Hússtjórn
Sérstök stjórn, Hússtjórn Borgarleikhúss, hefur eftirlit með rekstri og viðhaldi fasteignar Borgarleikhússins og með efndum samnings milli Reykjavíkurborgar og Leikfélags Reykjavíkur um Borgarleikhús. Hússtjórn er skipuð til fjögurra ára í senn, eftir hverjar borgarstjórnarkosningar. Borgarstjóri tilnefnir tvo fulltrúa og stjórn leikfélags Reykjavíkur einn. Leikhússtjóri og framkvæmdastjóri sitja fundi hússtjórnar.
Rekstur húsnæðis
Reykjavíkurborg er eigandi Borgarleikhúss og sér um viðhald hússins. Umsjónarmaður fasteignarinnar er Ögmundur Þór Jóhannesson. Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar fer með framkvæmd. Unnið er að gerð langtímaáætlunar um viðhaldsverkefni hússins og nýkaup enda orðið tímabært að endurnýja margt í húsinu eftir nær 20 ára starfsemi.
Erlent samstarf
Á síðustu árum hefur samstarf við erlend leikhús stóraukist og stefnt er að viðhalda þeirri stefnu og hlúa að henni. Borgarleikhúsið hefur verið í miklu samstarfi við leikhópinn Vesturport bæði hér á landi og erlendis með leikferðum m.a. til Bretlands, Hollands, Spánar, Kóreu, Þýskalands og Mexíkó og í undirbúningi er leikferð til Bandaríkjanna og víðar. Borgarleikhúsið hefur stofnað til samstarfs við Þjóðleikhúsið í Prag og haldið verður áfram heimsóknum framúrskarandi gestasýninga og hinu góða samstarfi við Listahátíð í Reykjavík.
