Leikritunarsjóður
Nýsköpun og fjölbreytni í íslenskri leikritun
Formaður stjórnar Leikritunarsjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, heiðursfélagi Leikfélags Reykjavíkur. Aðrir í stjórn eru Brynjólfur Bjarnason og Magnús Geir Þórðarson. Auglýst er eftir leikskáldi ár hvert og velur stjórn sjóðsins velur síðan úr hópi umsækjenda og viðkomandi boðinn eins árs samningur við Borgarleikhúsið. Laun, sem taka mið af starfslaunum listamanna, eru greidd mánaðarlega. Skáld sem valið er skal þegar hafa sýnt árangur á ritstörfum og skáldskap. Miðað er við að skáldið fái aðstöðu í leikhúsinu, vinni þar á samningstímanum og sé hluti af starfsliði Borgarleikhússins og sæki reglubundið fundi leikhússtjóra og leiklistarráðunauta. Kappkostað skal að veita leikskáldinu aðgang að allri starfsemi Borgarleikhússins og kynna því eiginleika leiksviðsins og töframátt þess. Það mun njóta aðstoðar, leiðsagnar og stuðnings leikhússtjóra, leiklistarráðunauta og annars starfsfólks leikhússins og eiga kost á samræðum við leikara, leikstjóra og leikmyndahöfunda auk þess að sitja æfingar á verkefnum Borgarleikhússins.

Unnið skal að ritun leikverks á tímabilinu með uppsetningu í huga auk þess sem skáldið ver tíma sínum í að kynna sér leikhúsformið. Stefnt er að því að leikverk sem unnið er á samningstímanum verði sviðsett í Borgarleikhúsinu. Þetta er þó ekki skilyrði. Borgarleikhúsið hefur forgang að leikritinu í átján mánuði að samningstíma liðnum. Eftir það er höfundi heimilt að ráðstafa verki sínu að eigin vild.
Jón Gnarr var valinn leikskáld Borgarleikhússins í síðustu útnefningu í febrúar 2010. Áður hafði Auður Jónsdóttir verið valin og var hún leikskáld hússins í febrúar 2009 til febrúar 2010.
Auglýst verður eftir umsóknum um starf leikskálds Borgarleikhússins árið 2011 í október 2010.
