Viltu vita meira um leikhús?
Námskeið fyrir leikhúsáhugafólk í samvinnu við Endurmenntun HÍ
Kirsuberjagarðurinn: námskeið og leikhúsferð
Í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands
Í tengslum við uppsetningu Borgarleikhússins á Kirsuberjagarðinum, dáðasta leikriti Antons Tsjekhovs, er efnt til námskeiðs um verkið og uppsetninguna. Þar verður fjallað um Tsjekhof, líf hans, leikritun og stöðu verka hans í leiklistarsögunni. Einnig verða rifjaðar upp sviðsetningar verka hans hér á landi. Þátttakendur sækja eina dagæfingu á verkinu og síðan lokaæfingu. Námskeiðinu lýkur með umræðukvöldi þar sem leikstjóri og aðstandendur ræða æfingaferli, vinnuaðferðir og markmið og svara spurningum sem brenna á fólki. Miði á lokaæfingu er innfalinn í námskeiðsgjaldi.
Skráningarfrestur er til 3. október 2011.
Kennarar: Árni Bergmann, rithöfundur og Jón Atli Jónasson, rithöfundur, leikskáld og leikstjóri. Að námskeiðinu koma einnig listrænir stjórnendur sýningarinnar og leikarar.
Hvenær: Mán. 10. okt. kl. 20:15 - 22:15: Hjá Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7
Þri. 11. okt. kl 10:00 – 12:00: Borgarleikhúsið
Mán. 17. okt. kl. 20:15 - 22:15: Hjá Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7
Þri. 25. okt. kl. 20:00: Forsýning í Borgarleikhúsinu
Mán. 31. okt. kl. 20:15 - 22:15: Hjá Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7
Verð:14.200 kr.
Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráning hér
eða í síma 525 4444
