Rannsóknarskýrslan

Rannsóknarskýrslan

Lestur skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis

 

Starfsfólk Borgarleikhússins stóð fyrir lestri á skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis dagana 12.-18. apríl. Lesturinn hófst klukkan 11 mánudaginn 12. apríl, daginn sem skýrslan kom út og honum lauk um hádegi sunnudaginn 18. apríl. Lesið var stanslaust allan sólarhringinn á tímabilinu og tók lesturinn 145 klukkustundir.

Lesturinn fór fram á Nýja sviðinu og Borgarleikhúsið var opið allan sólarhringinn á meðan á lestri stóð. Lestrinum var einnig sjónvarpað á vef leikhússins og tekinn upp, hljóð og mynd. Fjöldi fólks lagði leið sína í leikhúsið til að hlýða á lesturinn og uþb 60000 manns hafa heimsótt vefinn til að fylgjast með þar. Upptökurnar af lestrinum voru einnig mjög fljótlega aðgengilegar í hlaðvarpi Ríkisútvarpsins og síðar hjá Blindrabókasafninu. Því má segja að framtakið hafi bæði haft praktískt og táknrænt gildi, upptökurnar og flutningurinn voru aðgengilegar þjóðinni en lesturinn varpaði um leið ljósi á mikilvægi skýrslunnar fyrir íslensku þjóðina.

Hér má sjá ljósmyndir frá lestrinum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica