Samstarfsverkefni
Sjálfstæðir leikhópar í Borgarleikhúsinu
Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar skal Leikfélag Reykjavíkur „tryggja hið minnsta tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Leikflokkarnir skulu hafa endurgjaldslaus afnot af húsnæði en greiða útlagðan kostnað L.R. vegna vinnu þeirra í Borgarleikhúsinu.“
Auglýst er eftir umsóknum leikhópa vegna leikársins 2012/2013
Með umsókn skal senda skilmerkilega greinargerð um verkefnið, greina frá aðstandendum þess, framkvæmdaaðilum, listrænum stjórnendum og þátttakendum öllum ásamt vandaðri fjárhagsáætlun.
Umsóknir berist leikhússtjóra Leikfélags Reykjavíkur, Listabraut 3, 103 Reykjavík, eigi síðar en kl. 16:00 miðvikudaginn 21. mars 2012.
Einnig er hægt að senda inn umsókn í tölvupósti, merktum „Samstarf“ á borgarleikhus@borgarleikhus.is.
Samstarfsverkefni leikársins 2010/2011 samkvæmt samningi við Reykjavíkurborg eru:
Beðið eftir Godot - í samstarfi við Kvenfélagið
Axlar-Björn - í samstarfi við Vesturport
