Sönglist

Skráning hafin á námskeið vetrarins

Sneisa full dagskrá í vetur hjá Sönglist

Byrjendahópar í Sönglist fá kennslu í söng og leiklist. Í söngtímum eru fimm nemendur í hverjum sönghóp. 
Sungið er í hljóðnema við undirspil af geisladiskum. Áhersla er lögð á rétta söngtækni.

Í leiklistartímum eru tveir sönghópar saman. Þar er markvisst unnið að því að virkja sköpunarkraft nemenda og
að efla sjálfstraust þeirra. Farið er í spuna, textaæfingar og raddbeitingu. Í sjöttu viku fær hver sönghópur afhentan
 lítinn söngleik sem æfður er fram að annarlokum. Nemendasýningar fara fram  í lok hverrar annar sem er í 12
vikur. Kennsla hjá byrjendum fer fram í undirbúningsdeild Sönglistar, sem er í Borgartúni 1 og fara nemendasýn-
ingar þeirra hópa fram í Iðnó.

Þegar komið er í framhaldshóp heldur sú kennsla, sem áður er upptalin, áfram, en gerðar eru meiri kröfur til
nemenda með þyngri verkefnum.  Framhaldshópum er bæði kennt í Borgarleikhúsinu og í Borgartúni 1. Í
Listhópum skólans, sem eru sjö talsins, læra nemendur, fyrir utan það sem á undan er talið, m.a. förðun,
talsetningu teiknimynda, sviðsbardaga o.fl. Miklar kröfur eru gerðar um ástundun náms hjá þessum hópum
og er valið sérstaklega í þá af skólastjórnendum. Söngleikjadeild Sönglistar var stofnuð í ársbyrjun 2009.  
Þar þarf að þreyta inntökupróf til að hljóta skólavist.  Kennsla hjá söngleikjadeildinni fer fram í Borgartúni 1
 

Sönglist rekur einnig barna- og unglingaleikhúsið Borgarbörn sem setja árlega upp jólasýningar fyrir börn og unglinga auk annara verkefna.  Má þar nefna  jólaleikritið “Rétta leiðin”, “María, asninn og gjaldkerarnir”,
“Allt í misgripum” eftir Shakespeare og unglingaleikritið “Alsæla”
  Borgarbörn eru aðilar að Bandalagi
 íslenskra leikfélaga sem gefur þeim m.a. tækifæri á að sækja leikhúshátíðir erlendis.

Allir kennarar skólans eru fagmenntaðir.

Innritun á vef Sönglistar

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica