Sönglist
Sönglist 3

Sönglist

Söng- og leiklistarskóli í Borgarleikhúsinu

SÖNGLIST er söng- og leiklistarskóli sem stofnaður var haustið 1998 og er því að hefja 9. starfsárið.
Stofnendur eru Erla Ruth Harðardóttir leikkona frá The Guildford School of Acting and Dance og
Ragnheiður Hall, söngkennari frá Söngskólanum í Reykjavík og B.Ed frá Kennaraháskóla Íslands.
Aðalkennslugreinar skólans eru söngur og leiklist. Einnig fá ákveðnir framhaldshópar kennslu í dansi, talsetningu teiknimynda, bardagalist og leikhúsförðun.   

Í söngtímum syngja nemendur í hljóðnema og rík áhersla er lögð á rétta söngtækni, öndun og túlkun.

Í leiklistinni eru kennd undirstöðuatriði í einbeitingu, trausti, raddbeitingu og leikgleði. Unnið er markvisst að því að virkja sköpunarkraft nemenda og að efla sjálfstraust þeirra. 

Einungis fagmenntaðir kennarar starfa við skólann. Skólinn er starfræktur 12 vikur í senn og
lýkur hverri önn með veglegum nemendasýningum, sem fara fram á sviði Borgarleikhússins.

Skoðaðu heimasíðuna songlist.is.


Sönglist 3Sönglist 2



Þetta vefsvæði byggir á Eplica