Fyrirtaks aðstaða til leigu
Borgarleikhúsið er kjörinn staður fyrir fundi, sýningar, tónleika, ráðstefnur eða önnur mannamót. Borgarleikhúsið er best búna leikhús landsins og tækjabúnaður er allur fyrsta flokks. Auk þess búa starfsmenn hússins yfir gríðralegri tækniþekkingu og margra ára reynslu á sínu sviði. Hægt er að leigja aðstöðu í Borgarleikhúsinu, einn sal eða fleiri og njóta ráðgjafar afburða starfsfólks hússins. Reynt er að verða við óskum um útleigur eins og aðstæður leyfa, en athygli er vakin á því að dagskrá leikhússins er gjarnan þéttskipuð og því ráðlegt að hafa samband tímalega.
Allar óskir um leigu á sal í Borgarleikhúsinu sendist á Þorstein Ásmundsson, (thorsteinn(hja)borgarleikhus.is) framkvæmdastjóra Borgarleikhússins.
