Krafturinn knýr
Stórbrotin íþróttasýning á Stóra sviði Borgarleikhússins
Um verkið
Krafturinn knýr er stórviðburður í íþróttalífi á Íslandi. Þar stíga á Stóra svið Borgarleikhússins íþróttafólk úr hinum ýmsu greinum og sameina krafta sýna í stórsýningu – þeirri fyrstu hér á landi. Einstök sýning þar sem ólíkar íþróttagreinar sameina hæfni sína í stórbrotinni listsýningu.
Dans, Sirkus, fótbolti, fimleikar, hnefaleikar, körfubolti, bardagalistir, súlufittness, ketilbjöllur, jump fit, gjörningar. Ljósmyndir og gamlir íþróttamunir frá íþróttalistasafni Íslands.
Sýnt verður 21. febrúar 2010
kl 13 og 15
aðeins þessar tvær sýningar
Miðasala er í Borgarleikhúsinu, borgarleikhus.is og á midi.is
