Borgarleikhúsið

Ráðstefnur og salaleiga

Fullur salur í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið er best búna leikhús landsins. Í því eru þrír salir sem henta vel til funda, kynninga og tónleikahalds. Að auki er forsalur sem hentar vel fyrir móttökur eftir fundi og kynningar. Aðgengi hreyfihamlaðra er gott og það eru næg bílastæði við Borgarleikhúsið. Allir salir Borgarleikhússins eru búnir fullkomnum tæknibúnaði. 

Stóra svið Borgarleikhússins er best búna leiksvið landsins. Hljóðkerfi, ljósa- og myndbúnaður er fyrsta flokks og hentar jafnt fyrir fundi sem rokktónleika. Það státar af hringsviði og flugkerfi sem gefur möguleika á gera viðburði einstaka. Stóra sviðið rúmar 547 gesti.

Litla sviðið hentar mjög vel til funda og kynninga. Á Litla sviðinu skapast meiri nánd en á Stóra sviðinu. Lögun salarins gerir það að verkum að fjarlægð frá sviði til öftustu raðar er mjög lítil. Litla svið Borgarleikhússins rúmar 180 gesti. Hljóðkerfi, ljósa- og myndbúnaður er fyrsta flokks.

Nýja svið hentar mjög vel til funda, kynninga og tónleika. Nýja svið Borgarleikhússins rúmar 230 gesti. Hljóðkerfi, ljósa- og myndbúnaður er fyrsta flokks.

Forsalur Borgarleikhússins er rúmgóður og glæsilegur. Hann hentar einstaklega vel fyrir móttökur, hvort sem þær eru hluti af viðburði sem fer fram á sviði leikhússins eða stakur viðburður.

Starfsfólk leikhússins hefur víðtæka reynslu af hverskyns viðburðahaldi og er boðið og búið að miðla af reynslu sinni, hvort sem ætlunin er að halda aðalfund, starfsmannafund, fræðslufund, ráðstefnu, vinnustofu, tónleika eða kokteilboð.

Vinsamlegast hafið samband við okkur í netfanginu borgarleikhus@borgarleikhus.is eða í síma 568 5500 til að fá að skoða eða fá tilboð fyrir þinn viðburð. 

Skoða sali