Borgarleikhúsið

Skilmálar TIX

Eftirfarandi skilmálar eru vegna miðakaupa í gegnum vefsíðuna tix.is

Skilmálar TIX

Fáið fréttirnar fyrst

Hægt er að fylgjast með Borgarleikhúsinu á samfélagsmiðlunum Facebook, Instagram og Youtube. Þar gefst fólki tækifæri til að fylgjast með því sem fer fram á bak við tjöldin og vera í beinu sambandi við leikhúsið.

Taktu sýninguna með þér heim

Í Borgarleikhúsinu er hægt að fá margs konar muni tengda sýningunum. Má þar nefna leikskrár, tónlistina úr sýningunni 9 líf, Fíusólarboli-og húfur og fleira dót, bækur með völdum íslenskum leikritum, stuttermaboli, plaköt og fleira. 

Leikhúsupplifun sælkerans

Kitlaðu bragðlaukana með ljúffengum veitingum á Leikhúsbarnum áður en tjaldið er dregið frá. Við tökum vel á móti einstaklingum jafnt sem stórum og smáum hópum og töfrum fram sannkallaðar leikhúsveislur. Nánari upplýsingar í síma 568 8000 og á borgarleikhus.is.

Veislur

Gerðu kvöldið enn eftirminnilegra fyrir hópinn þinn. Við sníðum stærð og umfang veislunnar að þörfum hópsins og bjóðum allt frá standandi veislum til margrétta máltíða. Sendu línu á veitingar@borgarleikhus.is ef þú vilt gera þitt kvöld ógleymanlegt. 

Strætóstopp fyrir utan

Í kringum Borgarleikhúsið stoppa strætisvagnar frá öllum hverfum borgarinnar. Fólk getur skilið bílinn eftir heima, notið leikhúskvöldsins í rólegheitum og náð síðustu ferð heim.

Gott aðgengi

Í Borgarleikhúsinu er sérstakt pláss fyrir hjólastóla í öllum sölum hússins. Einnig eru allir salir hússins búnir sérstökum tónmöskvum sem gera notendum heyrnartækja kleift að heyra betur það sem fer fram á sviðinu.

Næg bílastæði

Fyrir leiksýningar er alla jafna hægt að finna bílastæði við Kringluna, bæði á efri og neðri hæð bílastæðisins. Frá neðri hæðinni er gengið upp tröppur beint að miðasölunni.

Mætið tímalega

Á rúmgóðum og notalegum Leikhúsbar Borgarleikhússins má njóta léttra veitinga, glugga í leikskrár og eiga ljúfa stund fyrir sýningu. Tilvalið er að panta veitingar bæði fyrir sýningu og/eða í hléi. Leiksýningar hefjast á tilsettum tíma og þá er áhorfendasölum lokað.