Borgarleikhúsið

  • Rocky Horror

Aukasýningar á Rocky Horror

13 nóv. 2018

Tveimur aukasýningum hefur verið bætt við á söngleiknum vinsæla Rocky Horror á Stóra sviði Borgarleikhússins. Upphaflega átti sýningum að ljúka í nóvember en sökum vinsælda og mikillar eftirspurnar hefur verið bætt við sýningum 8. og 14. desember. Ekki verður hægt að bæta við fleiri sýningum.

Söngleikurinn hefur slegið í gegn undanfarna mánuði. Rúmlega 35 þúsund manns hafa séð sýninguna en alls seldust 4580 miðar á sérstöku forsöludegi sem er miðasölumet fyrir einstakan viðburð í Borgarleikhúsinu. 

Páll Óskar Hjálmtýsson leikur Frank N Furter eins og þegar söngleikurinn var settur upp í fyrsta skipti á íslensku fyrir um 27 árum síðan í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Páll Óskar var nemandi í skólanum á þeim tíma. Aðrir leikarar í sýningunni eru Arnar Dan Kristjánsson, Björn Stefánsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Halldór Gylfason, Haraldur Ari Stefánsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir,Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir og Valdimar Guðmundsson.

Aukasýningarnar eru komnar í sölu hérna.

Kynsnillingur