Borgarleikhúsið

Baggalútur gerði lag fyrir Sex í sveit

20 sep. 2019

Hér að neðan er myndband við lagið Upp í bústað sem er nýtt lag með Baggalúti. Lagið var frumflutt á Bylgjunni í gær en Bragi Valdimar Skúlason samdi lagið fyrir gamanleikinn Sex í sveit. Um er að ræða einn vinsælasta gamanleik sem settur hefur verið upp í Borgarleikhúsinu en hefur nú tímastilltur og uppfærður.

Leikritið fjallar um sumarbústaðarferð sem endar með ósköpum og lagið, textinn og myndbandið eru í svipuðum stíl. Í leikritinu skella hjónakornin Benedikt og Þórunn sér í bústað í Eyjafirði. Hann hugsar sér gott til glóðarinnar þegar hún hyggur á heimsókn til móður sinnar og býður bæði viðhaldinu og vini sínum til veislu. Allt í einu snýst eiginkonunni hugur og ákveður án fyrirvara að vera um kyrrt. Þá hitnar hratt í kolunum og þegar veisluþjónustan bætist í hópinn ætlar beinlínis allt um koll að keyra.

Leikarar í sýningunni og myndbandinu eru Haraldur Ari Stefánsson, Jörundur Ragnarsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Sólveig Guðmundsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson.

Sýningin verður frumsýnd laugardaginn 5. október og er hægt að kaupa miða á sýninguna hér.
Upp í bústað