Borgarleikhúsið

Bara smástund! Frumsýning!

23 sep. 2022

Í kvöld frumsýnum við sprenghlægilega gamanleikinn Bara smástund! í leikstjórn Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur. Úrvalslið gamanleikara er í sýningunni en með aðalhlutverk fer Þorsteinn Backmann. 

Í öðrum hlutverkum eru Sólveig Arnarsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir, Jörundur Ragnarsson, Bergur Þór Ingólfsson, Sigurður Þór Óskarsson og Vilhelm Neto. Helga Stefánsdóttir gerir búninga og leikmynd. Við lofum hláturskasti! Góða skemmtun!