Borgarleikhúsið

Borgarleikhúsið býður IO. bekkingum í leikhús

11 okt. 2019

Öllum 10. bekkingum í Reykjavík boðið að koma á sýninguna Allt sem er frábært. 

Mikið líf og fjör hefur verið hjá okkur á sérstökum sýningum á Allt sem er frábært fyrir 10. bekkinga í Reykjavík. Um 1500 nemendur koma til með að mæta á sýningarnar en fjórar sýningar voru í seinustu viku og tvær til viðbótar í lok nóvember. 

Við erum stolt af þessari sýningu og teljum hana mjög við hæfi fyrir ungt fólk á þessum aldri sem oft á tíðum glímir jafnvel við depurð, sorg og aðra erfiðleika í lífinu. Við vonumst til að sýningin hafi þau áhrif að kennarar og aðrir aðstandendur sjái þörf á að vinna með efnið áfram. 

Listi yfir allt sem er frábært, númer 1. Ís með dýfu.