Borgarleikhúsið

Fjölmenni á kynningarfundi

2 sep. 2018

Rúmlega 400 manns mættu á opinn kynningarfund sem var haldinn á Stóra sviði Borgarleikhússins í dag. Þar fór Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri, yfir komandi leikár og sagði frá þeim leiksýningum sem verða í boði auk þess sem leikstjórar og leikarar valina verka sögðu nánar frá þeirra vinnu. 

Þá sungu þau Katrín Halldóra Sigurðardóttir, sem leikur í sýningunum Elly, Matthildur og Sýningin sem klikkar, og Páll Óskar Hjálmtýsson, sem leikur í Rocky Horror, lögin Ramóna úr Elly og Nú held ég heim úr Rocky Horror við góðar undirteknir áhorfenda. 

Þetta er í annað skiptið sem Borgarleikhúsið heldur kynningarfund sem þennan og ljóst að leikhúsgestir kunna vel að meta slíkan viðburð til að aðstoða sig þegar kemur að því að velja sýningar fyrir komandi leikár. 

Hægt verður að horfa á allan fundinn á Facebook-síðu Borgarleikhússins og á borgarleikhus.is frá og með þriðjudeginum 4. september.

7516550384_1c0a5716