Borgarleikhúsið

Fjölmenni á opnum samlestri á Kæru Jelenu

6 mar. 2019

Fjölmenni mætti á opinn samlestur á leikritinu Kæra Jelena sem var haldinn á Litla sviði Borgarleikhússins mánudaginn 4. mars. Þar lásu leikararnir yfir allt verkið og tóku svo þátt í umræðum með gestum í salnum.

Stór hluti gesta var ungt fólk og urðu miklar umræðir um innihald leikritsins milli þeirra, leikara og listrænna stjórnenda. Verkið fjallar um fjóra menntaskólanema sem koma óvænt í heimsókn til umsjónarkennara síns með óvenjulega fyrirspurn.

Verkið var bannað í Rússlandi fljótlega eftir að það var skrifað en hefur síðan slegið í gegn víða um heim. Það er eftir Ljúdmíla Razúmovskaja í þýðingu Ingibjargar Haraldsdóttur og Kristínar Eiríksdóttur.

Leikarar í verkinu eru þau Aron Már Ólafsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Sigurður Þór Óskarsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir.

Leikritið verður frumsýnt á Litla sviðinu föstudaginn 12. apríl.

Kaera-jelena-vefur-sv