Borgarleikhúsið

Fyrsti samlestur á verkinu Sölumaður deyr

14 des. 2020

Æfingar eru hafnar í Borgarleikhúsinu á þekktasta leikriti Arthurs Miller, Sölumaður deyr sem er löngum talið eitt mesta meistaraverk 20. aldar í leikritun. Það var frumsýnt árið 1949 og hlaut hin virtu Pulizer-verðlaun sama ár.

Í burðarhlutverkum verða stórleikararnir ástsælu Sigrún Edda Björnsdóttir og Jóhann Sigurðarson sem bæði fagna 40 ára leikafmæli um þessar mundir. Þau útskrifuðust frá Leiklistarskóla Íslands árið 1981 og hafa tæpast stigið af leiksviði síðan. Kristín Jóhannesdóttir leikstýrir, Brynja Björnsdóttir gerir leikmynd og Þórunn María Jónsdóttir búninga. Gyða Valtýsdóttir semur tónlist en hún hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs í fyrra. Leikarar sýningarinnar auk Sigrúnar Eddu og Jóhanns eru Aron Már Ólafsson, Esther Talía Casey, Hjörtur Jóhann Jónsson, Rakel Ýr Stefánsdóttir, Stefán Jónsson, Valur Freyr Einarsson, Þorsteinn Bachmann og Þórunn Arna Kristjánsdóttir.

„Willy Loman hefur aldrei malað gull. Nafn hans hefur aldrei verið í blöðunum. Hann er ekki mesta göfugmenni sem uppi hefur verið. En hann er manneskja og núna á hann mjög bágt. Og þess vegna þurfum við að sýna honum nærgætni. Ég ætla ekki að horfa upp á hann fara í gröfina eins og hann væri gamall, umkomulaus hundur. Manneskju í hans aðstæðum þarf að sýna nærgætni, mikla nærgætni.“ Sölumaðurinn hefur tekist á við hlutverk sitt, nánast af fullkomnun, allt sitt líf. Hann elur með sér þann draum að verða númer eitt. Draum um hamingjuríkt líf, velgengni og frægð. Draum um viðurkenningu. Þegar komið er að leiðarlokum í annasömu lífi Willy Lomans er ljóst að draumar hans hafa ekki ræst. Hann ferðaðist um sem sölumaður í fjölda ára en er nú að þrotum kominn. Tryggustu viðskiptavinir hans eru látnir eða hafa flutt á brott, yngri samstarfsmenn vinna skilvirkara. Sölumennskan er orðin að martröð. Þegar nýr og ungur yfirmaður segir Willy upp störfum, hefst erfið sjálfsskoðun þar sem hann lítur til baka og reynir að skilja hvað fór úrskeiðis. Lífslygin er allsráðandi og gæfuleysi barnanna, sem geta ekki sigrast á falskri hugmyndafræði eldri kynslóðarinnar, verður honum um megn. Hann sér aðeins eina útgönguleið: Sjálfsvíg, dulbúið sem bílslys, svo að fjölskylda hans fái líftrygginguna og geti lifað af henni.

Sölumaður deyr er harmræn saga um hrun sjálfsmyndar. Saga fórnarlambs hins vægðarlausa Ameríska draums um árangur og fjárhagslega velmegun, um glæst og áhyggjulaust líf.