Borgarleikhúsið

Fyrsti samlestur fyrir leikritið Helgi Þór rofnar

11 nóv. 2019

Fyrsti samlesturinn á Helgi Þór rofnar, nýju leikriti eftir Tyrfing Tyrfingsson, var í Borgarleikhúsinu í dag en leikritið verður frumsýnt 17. janúar 2020. Leikstjóri sýningarinnar er Stefán Jónsson og leikararnir eru Bergur Þór Ingólfsson, Hilmar Guðjónsson, Hjörtur Jóhann Jónsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir.

Lífið er dálítið niðurdrepandi á útfararstofu Jóns. Samt kviknar smá lífsneisti með syni hans, Helga Þór líksnyrti, þegar aðstandandi líksins á börunum birtist; ung stelpa sem hann þekkir. Það lifnar yfir þeim báðum, þau skilja hvort annað og eru að byrja að tengjast þegar Jón mætir á svæðið. Hann er móður og másandi eftir að hafa séð sýnir og kastar fram spádómi um að líf Helga sé í stórhættu. Og þar með byrjar allt. Helgi Þór rofnar er drepfyndið og spennandi leikrit um það hvort maðurinn komist undan sögunni um sig, geti losað sig úr álögum og hætt að trúa á spádóma.

Þetta er fimmta verkið sem Tyrfingur Tyrfingsson frumsýnir í Borgarleikhúsinu en fá af leikskáldum nýrrar kynslóðar hafa vakið jafn mikla athygli og notið jafn mikillar hylli. Áður hafa Kartöfluæturnar, Auglýsing ársins, Bláskjár og Skúrinn á sléttunni verið sýnd hér og kynnt á leiklistarhátíðum í Evrópu. Von er á uppfærslu á Kartöfluætunum í einu virtasta leikhúsi Hollands, Toneelgroep Oostpool sem hefur einnig tryggt sér réttinn á þessu nýja verki: Helgi Þór rofnar.

Listrænir stjórnendur sýningarinnar eru Gretar Reynisson, leikmyndahöfundur, Stefanía Adolfsdóttir, búningahöfundur, Pálmi Jónsson sér um lýsingu, Margrét Benediktsdóttir sér um leikgervi og Garðar Borgþórsson um hljóð.