Borgarleikhúsið

  • Góða ferð inn í gömul sár

Góða ferð inn í gömul sár

1 feb. 2023

Stórmerkilegt upplifunarleikhús þar sem Eva Rún Snorradóttir kafar í HIV faraldurinn sem geisaði hér á níunda og tíunda áratug síðustu aldar með viðtölum og heimildasöfnun. Frumsýning 4. febrúar. 


Áhorfandanum er boðið í ljóðrænt en magnað ferðalag gegnum heimsfaraldur sem, ólíkt þeim sem nýverið geisaði, var sveipaður skömm og þaggaður niður. Fyrri hluti sýningarinnar er hljóðverk sem gestir hlusta á í einrúmi en í síðari hluta er boðið á Nýja svið Borgarleikhússins þar sem lífinu er fagnað um leið og leitað er leiða til að heila sárin.

HIV faraldurinn á Íslandi hefur í raun ekki verið gerður upp í listheiminum og fórnarlamba hans ekki minnst með sambærilegum hætti og annarra sem látið hafa lífið af völdum sjúkdóma eða náttúruhamfara. Þetta er þó að breytast í nýjum heimi þar sem jaðarsettir hópar eru loksins að öðlast rödd. Samfélagslegt mikilvægi þess að geta litið söguna sem og samtímann með nýjum gleraugum nýrra tíma verður seint ofmetið.

 ATHUGIÐ - Verkið er upplifunarverk í tveimur hlutum.

Fyrri hluti er í formi hljóðverks sem hefst kl. 18:30 - nánari upplýsingar eru sendar í tölvupósti til gesta eftir miðakaup.

Seinni hluti verksins hefst kl. 20:00 í Borgarleikhúsinu.