Hvað færi á listann þinn?
Leikritið Allt sem er frábært var frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins á föstudaginn og hefur því verið tekið mjög vel af gestum og gagnrýnendum. Á frumsýningardag var birt lítið myndband á samfélagsmiðlum í tengslum við sýninguna og er nú hægt að horfa á það hér á síðunni.
Í leikritinu gerir Valur Freyr Einarsson, eini leikari sýningarinnar, gerir lista um allt það sem er frábært í heiminum og þess virði að lifa fyrir. Fyrir utan Litla sviðið er veggur þar sem gestur leikhússins sem er nú þakinn litlum, gulum miðum. Á þessa miða hafa gestir leikhússins skrifað hvað þeim finnst frábært. Í myndbandinu hér að neðan segir fólk úti í bæ frá því sem þeim finnst frábært.