Borgarleikhúsið

  • prufur

Inntökuprufum lokið!

2 sep. 2021

Inntökuprufur í Leiklistarskóla Borgarleikhússins fóru fram dagana 21.-24. ágúst. Við þökkum kærlega fyrir áhugann og hugrekkið sem umsækjendur sýndu með því að mæta í prufuna.


Það var metaðsókn í prufurnar í ár og valið var því ekki auðvelt. Fjölmargir áhugasamir og efnilegir umsækjendur fengu því ekki pláss að þessu sinni. Kennsla á haustönn í Leiklistarskóla Borgarleikhússins hefst 6. september. Skólinn hefur vaxið með hverju árinu og í vetur stunda alls 82 nemendur nám á þremur stigum. Framundan er spennandi vetur í Leiklistarskólanum.

Á haustönn munu nemendur á lokaári setja upp tvö verðlaunahandrit Krakkar skrifa á Litla sviðinu undir leikstjórn Bergdísar Júlíu Jóhannsdóttur og Ylfu Aspar Áskelsdóttur. Leikritin verða tekin upp í samvinnu við KrakkaRúv. Í vor munu allir nemendur skólans taka þátt í glæsilegri uppskerusýningu auk útskriftarsýningu 3. stigs. Skólinn mun áfram eiga í fjölbreyttu samstarfi við ýmsar stofnanir og hátíðir með það að markmiði að auka aðgengi barna að leiklist.