Borgarleikhúsið

Inntökuprufur

í Leiklistarskóla Borgarleikhússins

16 ágú. 2022

Borgarleikhúsið býður upp á einstakt leiklistarnám fyrir börn á á grunnskólaaldri. Skólinn er þriggja ára leiklistarnám þar sem nemendur útskrifast að því loknu sem Ungleikarar. 

Opið er fyrir skráningu í inntökuprufur fyrir börn sem sækja um að hefja námsvist haustið 2022. Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst. Athugið að aðeins er tekið við umsóknum frá börnum fæddum á árunum 2009-2012.

Prufurnar fara fram í Borgarleikhúsinu dagana 25-28.ágúst 2022. Þau sem skráð eru í prufuna fá sent boð í tölvupósti með nákvæmri tímasetningu.

Skráning og nánari upplýsingar má sjá hér