Borgarleikhúsið

  • Gonguturinn

Leiklestur: Göngutúrinn

22 feb. 2021

Miðvikudaginn 24. febrúar kl. 20:00 býður Borgarleikhúsið upp á sviðsettan leiklestur á nýju verki í vinnslu, Göngutúrinn. 


Leiklesturinn er fyrsti viðburðurinn í nýrri röð sviðsettra leiklestra undir hatti Umbúðalaust, þar sem nýir sviðshöfundar fá tækifæri til að þróa hugmyndir sínar og verk í vinnslu.

Göngutúrinn er gamansamt leikrit eftir Ragnar Ísleif Bragason í leikstjórn Jörundar Ragnarssonar. Verkið fjallar um hjón sem skella sér á hótel úti á landi til að lífga upp á sambandið og nýta gjafabréf áður en það rennur út. Á hótelinu koma óvæntir hlutir upp á yfirborðið þegar hjónin kynnast kokkinum og móttökustúlkunni á staðnum.

Athugið að leiklesturinn er ókeypis en nauðsynlegt er að panta miða hér.