Borgarleikhúsið

Með gat á hjartanu í laginu eins og Guð

20 nóv. 2020

Endurflutningur Útvarpsleikhússins á Rás 1 á heimildaverkinu Með gat á hjartanu í laginu eins og Guð eftir Jón Atla Jónasson verður á laugardaginn, 21. nóvember, kl. 13:00.

Þann 23. október árið 2018 var heimildaverk eftir Jón Atla Jónasson flutt á Nýja sviði Borgarleikhússins og jafnframt tekið upp fyrir hljóðvarp, en þetta var samstarfsverkefni Útvarpsleikhússins og Borgarleikhússins. Efni verksins eru ásakanir á hendur Kaþólsku kirkjunnar vegna skelfilegs ofbeldis gegn börnum sem viðgekkst þar um árabil. Leikritið verður endurflutt næstkomandi laugardag, 21. nóvember, kl. 13:00, en laugardaginn 28. nóvember kl. 14:00 verður svo útvarpað þætti Þorgerðar E. Sigurðardóttur sem hún vann upp úr viðtölum við þolendur sem og opnum umræðum að lokinni sýningunni í Borgarleikhúsinu.

Árið 2012 gaf Rannsóknarnefnd á vegum Kaþólsku kirkjunnar út rannsóknarskýrslu sem varpaði ljósi á eitt stærsta leyndarmál Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Þar sögðu sumir viðmælendur frá alvarlegu ofbeldi sem þeir urðu fyrir af hálfu starfsfólks kirkjunnar.

Með gat á hjartanu í laginu eins og Guð er byggt á samtölum við fyrrum nemendur Landakotsskóla og skýrslu um viðbrögð ásakana um kynferðisbrot eða önnur ofbeldisbrot vígðra þjóna og annars starfsfólks Kaþólsku kirkjunnar.

Um er að ræða heimildaverk um óhugnanlega atburði sem áttu sér stað í Landakotsskóla á árunum 1962 til 1998. Hvað var að gerast innan veggja eins virtasta einkaskóla landsins? Hvers vegna var skólahaldið og rekstur sumarbúðanna að Riftúni aldrei rannsakað? Var ekkert eftirlit með þessum stofnunum? Hverjar eru frásagnir nemenda? Af hverju þögðu þau?

Jón Atli Jónasson, eitt helsta leikskáld Íslendinga, tók að sér það vandasama verk að kafa inn í myrkviði ofbeldis og misnotkunar til að leita svara, í mögnuðu verki um kerfisbundið ofbeldi, þöggun og skömm.

Leikarar: Arnar Dan Kristjánsson, Halldór Gylfason og Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Einnig kemur Stúlknakór Reykjavíkur fram undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson. Leikstjórn: Egill Heiðar Anton Pálsson.