Borgarleikhúsið

Myndband frá óvæntri afmælisveislu Ragga Bjarna

24 sep. 2018

Ragnar Bjarnason varð 84 ára laugardaginn 22. september og starfsfólk Borgarleikhússins kom honum á óvart með því að syngja afmælissönginn fyrir hann og fá fullan sal áhorfenda á sýningunni Elly að gera það sama.

Leikstjóri sýningarinnar, Gísli Örn Garðarsson, fylgdi Ragga á svið þetta kvöld og fékk allan salinn til að taka undir með leikhópnum og hljómsveit áður en Raggi sjálfur tók öll völd og söng fyrir fólkið nokkur lög.
 
Eftir það var haldin afmælisveisla fyrir Ragga þar sem var meðal annars boðið upp á köku sem hafði verið skreytt með mynd af honum og Katrínu Halldóru, sem leikur Elly. Allt tókst þetta gríðarlega vel eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan. Raggi Bjarna 84 ára