Borgarleikhúsið

Níu líf - Sögur af landi

11 jan. 2019

Níu líf – Sögur af landi er vinnuheiti á nýjum söngleik með lögum Bubba Morthens sem verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins snemma árs 2020. Þetta var tilkynnt á fréttamannafundi í dag þar sem Bubbi sjálfur flutti brot úr nokkrum af sínum vinsælli lögum ásamt leikurum Borgarleikhússins.

Ólafur Egill Egilsson skrifar verkið og tengir hann tónlist og texta Bubba við merka atburði í sögu þjóðarinnar síðustu áratugi. ,,Saga og sögur Bubba eru kannski um leið sögur okkar allra, sögur Íslands, frá verbúð til víðáttubrjálæðis, frá blindskerjum til regnbogastræta, hlýrabolum til axlapúða og aftur til baka,” segir Ólafur Egill um verkið. 

Á þessum tímapunkti hefur ekkert verið ákveðið varðandi leikstjóra, listræna stjórnendur eða leikara. Í verkinu munu ólíkir flytjendur túlka Bubba. Við munum kynna verkið í upphafi næsta leikárs ásamt öðru því sem verður sýnt á sviðum Borgarleikhússins á leikárinu. Starfsfólk Borgarleikhússins er fullt eftirvæntingar að takast á við þetta verkefni og takast á við nýjar áskoranir og færa leikhúsgestum sögurnar okkar, söngleikinn Níu líf – sögur af landi.

Hér að neðan má horfa á fréttamannafundinn í heild sinni þar sem Brynhildur Guðjónsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Björn Stefánsson og Katrín Halldóra Sigurðardóttir sungu með Bubba.

Níu líf - sögur af landi