Önnur stiklan úr Ríkharði III - Lafði Anna
Hér má sjá aðra stikluna úr hátíðarsýningu Borgarleikhússins, Ríkharði III, sem verður frumsýnd á Stóra sviðinu 29. desember.
Í stiklunni má sjá Lafði Önnu sem er leikin af Þórunni Örnu Kristjánsdóttur. Stiklur með hinum konunum í lífi Ríkharðs III munu svo birtast jafnt og þétt fram að frumsýningu.