Opinn samlestur á Ríkharði III föstudaginn 26. október
Samlestur á Ríkharði III eftir William Shakaspeare verður í Borgarleikhúsinu föstudaginn 26. október kl. 12:30. Hann er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Kristján Þórður Hrafnsson þýddi leikritið og verður þetta því opinber frumflutningur á splunkunýrri Shakespear-þýðingu.
Leikritið verður svo frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins þann 29. desember nk. ,,Ég hlakka til að rúlla af stað í þennan ruddaslag,” segir Brynhildur Guðjónsdóttir, leikstjóri sýningarinnar. ,,Við erum með glænýja, ferska og mjög skiljanlega þýðingu í bundnu máli, flottan heim og frábæra leikara. Það er mikil gleði hjá okkur að bjóða fólki að hlýða á þennan fyrsta samlestur.”
Hjörtur Jóhann Jónsson fer með hlutverk Ríkharðs III. ,,Það er ótrúlega
spennandi að fara af stað í þetta verkefni enda er þetta hlutverk eitt
draumahlutverka leiklistarsögunnar. Það er skemmtigarður fyrir leikara að
takast á við þennan karakter,” segir Hjörtur Jóhann.
Aðrir leikarar í sýningunni eru Arnar Dan Kristjánsson, Davíð Þór Katrínarson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Halldór Gylfason, Hilmar Guðjónsson, Jóhann Sigurðarson, Kristbjörg Kjeld, Sólbjört Sigurðardóttir, Valur Freyr Einarsson og Þórunn Arna Kristjánsdóttir.
Listrænir stjórnendur sýningarinnar eru Ilmur Stefánsdóttir sem sér um leikmynd, Filippía Elísdóttir hannar búninga, Björn Bergsteinn Guðmundsson sér um lýsingu, Hrafnhildur Hagalín er dramtúrg, Daníel Bjarnason sér um tónlist, Valgerður Rúnarsdóttir er danshöfundur. Elín S. Gísladóttir sér um leikgervi og Baldvin Þór Magnússon um hljóð.