Borgarleikhúsið

Prinsessuleikarnir - frumsýning 17. mars

14 mar. 2023

Una Þorleifsdóttir leikstýrir þremur stórleikkonum, þeim Birgittu Birgisdóttur, Völu Kristínu Eiríksdóttur og Sólveigu Arnarsdóttur, í gegnum skógarþykkni og rósagerði í leit að prinsessunni í okkur sjálfum.

Þegar Þyrnirós vaknar af aldarlöngum svefni horfist hún í augu við mann sem hún hefur aldrei séð en veit að hún á að elska. Eða hvað? Hver er hún án prinsins? Þarf Mjallhvít að deyja til að verða “hamingjusöm upp frá því” með sínum prinsi - sem hún hefur heldur aldrei séð? Þarf aðeins einn koss til að skapa prinsessu? Er það Chanel dragtin sem gerir Jackie að prinsessu? 

Með beittu háði og skörpu innsæi nálgast Nóbelskáldið Elfriede Jelinek goðsagnir og ævintýri um ólíkar prinsessur, tengsl þeirra við prinsa og eigin sjálfsmynd, fordóma og fegurð, dauða og frelsi. Þrír þættir sem tefla fram ólíkum prinsessum: Mjallhvíti, Þyrnirós og Jackie Kennedy. 

Mirek Kaczmarek sér um leikmynd, búninga og lýsingu og Gísli Galdur Þorgeirsson sér um tónlist og hljóðmynd. Elín S. Gísladóttir sér um leikgervi og Bjarni Jónsson þýddi verkið. Með hlutverk prinsessanna fara Birgitta Birgisdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir og Sólveig Arnarsdóttir og með önnur hlutverk fara Bergur Þór Ingólfsson og Jörundur Ragnarsson. 

Ath að sýningin er ekki ætluð yngri en 12 ára.