Söngleikurinn Gosi frumsýndur á sunnudaginn
Glænýr söngleikur um ævintýri spýtustráksins Gosa verður frumsýndur á Litla sviði Borgarleikhússins á sunnudaginn, 23. febrúar. Um er að ræða nýja leikgerð sem var unnin úr upprunalegri sögu Carlo Collodi af Ágústu Skúladóttur, leikstjóra, Karli Ágústi Úlfssyni sem samdi texti við lögin í sýningunni og leikhópnum.
Gosa leikur Haraldur Ari Stefánsson og með honum á sviðinu er þau Halldór Gylfason, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Eiríkur Stephensen og Eyvindur Karlsson. Þeir Eiríkur og Eyvindur sömdu einnig tónlistina í söngleiknum.
Sagan segir frá trésmiðnum Jafet sem kemst yfir talandi viðardrumb og fær þá hugmynd að smíða úr honum brúðu. Til verður spýtustrákurinn Gosi; forvitinn prakkari sem á erfitt með að feta hinn rétta veg. Í stað þess að hlýða föður sínum heldur hann á vit vafasamra ævintýra, kynnist talandi kribbu sem reynir að koma fyrir hann vitinu, lætur undirförulan kött og ref snúa á sig og þarf að ganga í gegnum alls konar hremmingar áður en hann kemst til þroska með dyggri hjálp bláhærðu dísarinnar.
Listrænir stjórnendur sýningarinnar auk Ágústu eru Þórunn María Jónsdóttir sem sér um leikmynd, leikgervi og búninga, Þórður Orri Pétursson sem sér um lýsingu, Guðbjörg Ívarsdóttir, leikgervi, Þorbjörn Steingrímsson, hljóð, og Elmar Þórarinsson sér um myndbönd.
Mikil spenna er fyrir þessari sýningu og þegar eru yfir 20 sýningar uppseldar.