Stórskáldið - frumsýning
18 okt. 2019
Nýtt íslenskt leikverk, Stórskáldið eftir Björn Leó Brynjarsson verður frumsýnt á Nýja sviðinu í kvöld. Björn Leó var leikskáld Borgarleikhússins 2017/2018 og er þetta afrakstur þeirrar vinnu. Leikstjóri verksins er Pétur Ármannsson en hann hlaut tilnefningu til Grímuverðlauna 2019 fyrir leikstjórn fyrir sýninguna Club Romantica.
Heimildamyndagerðarkonan Rakel er stödd í niðurníddum iðnaðarbæ, djúpt í Amazon-frumskóginum, ásamt Andra, tökumanni sínum og elskhuga. Þau eru að gera heimildamynd um föður Rakelar, sérvitra Nóbelskáldið Benedikt, sem er dauðvona. En feðginin hafa ekki hist í áratugi og geta ómögulega komið sér saman um hvernig Benedikt á að birtast í heimildamyndinni. Óuppgerð fjölskyldumál og framandi hitasótt blandast sjálfu höfundarverki Benedikts í draumkenndri og ærslafullri atburðarás þar sem áreiðanleiki heimsins fellur í sundur.
Verkið er spennandi könnunarleiðangur um hinar mörgu hliðar sannleikans og þrá mannsins eftir því að skilja eitthvað eftir sig. Er hægt að gera hlutlausa heimildamynd? Er hægt að vita og miðla sannleikanum? Hvað þá sannleikanum um sjálfan sig?
Verið velkomin í spennandi ferðalag um Amazon skóginn á Nýja sviðinu.
Leikarar sýningarinnar eru Hilmir Guðjónsson, Jóhann Sigurðsson og Unnur Ösp Stefánsdóttir.
Listrænir stjórnendur eru Ilmur Stefánsdóttir leikmynda- og búningahönnun, Margrét Benediktsdóttir með leikgervi, Þórður Gunnar Þorvaldsson með hljóð og Pálmi Jónsson með lýsingu og myndband.