Borgarleikhúsið

Umbúðalaust í Borgarleikhúsinu

8 feb. 2019

Borgarleikhúsið auglýsir eftir hugmyndum frá ungu sviðslistafólki (yngra en 35 ára) að sýningum fyrir nýtt svið sem opnar á næsta leikári undir nafninu Umbúðalaust – Stúdíó Borgarleikhússins á þriðju hæðinni.

Stúdíó Borgarleikhússins verður vettvangur til að þróa hugmyndir og setja upp sýningar í hráu rými með lítilli umgjörð. Við erum að leita eftir hugmyndum að frumlegum, afgerandi sýningum og hvers kyns formtilraunum.

Markmiðið með Stúdíói Borgarleikhússins er að styrkja grasrótarstarf í íslensku sviðslistalífi og efla tengsl yngstu kynslóðar sviðshöfunda við áhorfendur. Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar.

Umsækjendum verður boðið að kynna hugmyndir sínar dagana 7. – 9. mars og fær hver umsækjandi/hópur 10 mínútur til að kynna hugmynd sína. Þrjár hugmyndir verða síðan valdar sem viðkomandi sviðshöfundar þróa áfram í samstarfi við starfsfólk Borgarleikhússins. Hvert verkefni sem verður fyrir valinu fær ákveðna upphæð og ákveðna umgjörð og takmarkaðan tíma (4 vikur) til að vinna sýninguna. Sýningarnar verða á dagskrá leikhússins á næsta leikári 2019/20.

Með umsókn skal fylgja:
- Nafn, heimilisfang, netfang, símanúmer
- Ferilskrá
- Stutt lýsing á hugmynd (100 -150 orð)
- Umsóknir skulu sendar í tölvupósti, borgarleikhus@borgarleikhus.is merkt “UMBÚÐALAUST” ekki síðar en 27. febrúar 2019

Nánari upplýsingar veitir Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri.