Ég dey
- Nýja sviðið
- 1 klst. og 45 mín., eitt hlé
- Verð: 6.550 kr.
- Sýningum lokið
„Ég var orðin 50 ára þegar ég uppgötvaði að ég myndi á einhverjum tímapunkti deyja. Ég furðaði mig á því hvernig ég gat komist hjá því í svona langan tíma að horfast í augu við dauðann. Þessi sýning er unnin út frá þessari uppgötvun.”
Ég dey
Trúir þú á líf fyrir dauðann?
„Ég var orðin 50 ára þegar ég uppgötvaði að ég myndi á einhverjum tímapunkti deyja. Ég furðaði mig á því hvernig ég gat komist hjá því í svona langan tíma að horfast í augu við dauðann. Þessi sýning er unnin út frá þessari uppgötvun.”
Í sýningunni mun Charlotte skoða lífið frá sjónarhóli dauðans og skoða dauðann frá sjónarhóli lífsins. Hvers vegna forðumst við að ræða dauðann? Þarf hann að vera sorglegur og leiðinlegur? Hver segir að við deyjum í raun og veru? Og af hverju er svona erfitt að lifa lífinu lifandi? Charlotte mun ögra sjálfri sér og áhorfendum með því að framkvæma fimm hluti sem hún hefur aldrei áður gert á leiksviði, suma vegna þess að hún hefur ekki þorað því áður. „Ég geri þetta nú eða aldrei, það skiptir ekki máli hvernig þetta fer. Ég er hvort sem er að fara að deyja“.
„Ég dey“ er þriðji einleikur Charlotte Bøving. Hinir fyrri eru „Hin smyrjandi jómfrú“ 2002 og „Þetta er lífið – og nu er kaffen klar“ 2010. Charlotte var tilnefnd til Grímunnar fyrir báðar sýningarnar.
Í samstarfi við Opið út.
Verkefnið er styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneyti - Leiklistarráði.Leikarar
- Charlotte Bøving
Listrænir stjórnendur
Höfundur
Charlotte Bøving
Leikstjórn
Benedikt Erlingsson
Leikmynd og búningar
Þórunn María JónsdóttirTónlist
Gísli Galdur Þorgeirsson
Dramatúrg
Gréta Kristín ÓmarsdóttirLýsing og hljóð
Garðar Borgþórsson