Ball
- Stóra sviðið
- Verð: 5900
- Sýningum lokið
Ball
Eftir Alexander Roberts og Ásrúnu Magnúsdóttur
Á Balli koma saman atvinnudansarar og áhugadansarar – breikdansari frá níunda áratugnum, ballerína á eftirlaunum, samkvæmisdans stjarna, freestyle goðsögn, bollýwood dansari, streetdansari, dansarar Íslenska dansflokksins, gó-gó dansari, dansnemandi og nútímadansari sem elskar að dansa við Bob Marley. Það sem þau eiga öll sameiginlegt er ást þeirra á dansi.
Ball býður dans elskendum á öllum aldri, með ólíka líkama, mismunandi bakgrunn og reynslu að stíga upp á svið og dansa saman.
Hvert og eitt þeirra býður upp á dans, velur sína tónlist og finnur leið til þess að deila sínum dansi með hópnum. Dansinn á ekki bara að snúast um afburðartækni eða ómælda hæfileika hvers og eins heldur einnig um upplifunina á því að dansa alla þessa dansa saman.
Rétt eins og gerist á balli.
Listrænir stjórnendur
Höfundar
Alexander Roberts & Ásrún MagnúsdóttirBúningar
Erna Guðrún FritzdóttirLjós
Kjartan ÞórissonHljóð
Baldvin Þór MagnússonÆfingastjóri
Kata IngvaLjósmynd
Lilja Birgisdóttir