Borgarleikhúsið



Black Marrow

  • Stóra sviðið
  • Íslenski dansflokkurinn
  • 60 mín
  • Verð: 5.900 kr.
  • Sýningum lokið
  • Sýningum á Black Marrow er lokið. Við þökkum fyrir góðar viðtökur.
  • Kaupa miða Panta mat
Black Marrow var upprunalega samið fyrir Chunky Move dansflokkinn og samið í samvinnu við Sara Black, Paulo Castro, Julian Crotti, Alisdair Macindoe, Carlee Mellow & James Shannon. Black Marrowvar fyrst frumsýnt á Alþjóðlegu listahátíðinni í Melbourne í október 2009.

Black Marrow

Smyrsl guðs eða saur djöfulsins?

Hvað er þetta svarta blóð sem rennur um æðar okkar iðnvædda heims? Hvaða goðsagnir er þar að finna? Hve mikið mun það óafturkallanlega umbreyta okkur og sambandi okkar við umhverfið? Hversu háð erum við og hvað göngum við langt til að uppfylla þarfir okkar? Erum við olía framtíðarinnar?

Með þessar spurningar að leiðarljósi sköpuðu Erna Ómarsdóttir og Damien Jalet fyrstu útgáfuna af Black Marrow í Ástralíu árið 2009 sem þau hafa nú þróað enn frekar með dönsurum Íslenska dansflokksins. Erna og Damien finna hér upp á nútíma helgiathöfn út frá hinu forna sambandi mannsins við náttúruna. Með dönsurunum nýta þau hinn forna trans til að endurspegla heim þar sem eðlishvötin hefur verið iðnvædd og líkaminn umbreytist, stökkbreytist, gleðst og berst til að lifa af. Með því að nota rytma, endurtekningu og örmögnun í bland við seiðmagnaða tónlist Ben Frost, umbreytast dansararnir í steingervinga, vélar, heiðin goð og áhyggjulausan, glitrandi æskulýð. Hver einasta athöfn hefur tilgang – trans er oft læknandi. 

Black Marrow er eins og afmyndaður spegill, skyggð endurspeglun á nútímasambandi okkar við jörðina. Ljóðræn tilraun til að bjarga henni… eða okkur sjálfum.

Black Marrow var upprunalega samið fyrir Chunky Move dansflokkinn og samið í samvinnu við Sara Black, Paulo Castro, Julian Crotti, Alisdair Macindoe, Carlee Mellow & James Shannon. Black Marrow var fyrst frumsýnt á Alþjóðlegu listahátíðinni í Melbourne í október 2009.

Listrænir stjórnendur

  • Danshöfundar

    Erna Ómarsdóttir
    Damien Jalet
  • Astoðarmaður danshöfunda

    Sara Black
  • Frumsamin tónlist

    Ben Frost
  • Önnur tónlist

    Danzel
  • Ljós

    Björn Bergsteinn Guðmundsson
  • Búningar

    Júlíanna Steingrímsdóttir
  • Sviðsmynd

    Alexandra Mein
    Erna Ómarsdóttir
    Damien Jalet
    Júlíanna Steingrímsdóttir
    Rebekka Moran
  • Grímur

    Rebekka Moran & Heimir Sverrisson eftir upprunalegri hönnun Alexandra Mein