Gosi
- Stóra sviðið
- 1 klst. og 30 mín., eitt hlé
- Verð: 4.200 kr.
- Sýningum lokið
Trésmiðurinn Jafet kemst yfir talandi viðardrumb og fær þá hugmynd að smíða úr honum brúðu. Til verður spýtustrákurinn Gosi; forvitinn prakkari sem á erfitt með að feta hinn rétta veg.
Gosi
"Gosi er allt í senn falleg, fyndin og töfrandi sýning sem enginn leikhúsunnandi ætti að láta framhjá sér fara."
Trésmiðurinn Jafet kemst yfir talandi viðardrumb og fær þá hugmynd að smíða úr honum brúðu. Til verður spýtustrákurinn Gosi; forvitinn prakkari sem á erfitt með að feta hinn rétta veg. Í stað þess að hlýða föður sínum heldur hann á vit vafasamra ævintýra, kynnist talandi kribbu sem reynir að koma fyrir hann vitinu, lætur undirförulan kött og ref snúa á sig og þarf að ganga í gegnum alls konar hremmingar áður en hann kemst til þroska með dyggri hjálp bláhærðu dísarinnar.
Leikarar og tónlistarmenn sýna okkur þetta sígilda og ástsæla ævintýri um spýtustrákinn í nýjum og litríkum búningi. Leikstjóri sýningarinnar, Ágústa Skúladóttir, hefur leikstýrt fjölda barna og fjölskyldusýninga sem ávallt hafa notið mikilla vinsælda.
Sýningin hlaut Grímuverðlaun fyrir barnasýningu ársins á Grímuverðlaunahátíðinni 2020.
Gosi | Ævintýri spýtustráks Tónlistin í Gosa
Leikarar
Árni Þór Lárusson
Halldór Gylfason
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
Eiríkur Stephensen
Eyvindur Karlsson
Listrænir stjórnendur
Höfundur
Carlo Collodi/Ágústa Skúladóttir
Söngtextar
Karl Ágúst Úlfsson
Leikstjórn
Ágústa Skúladóttir
Leikmynd & búningar
Þórunn María Jónsdóttir
Lýsing
Þórður Orri Pétursson
Tónlist
Eiríkur Stephensen
Eyvindur KarlssonLeikgervi
Þórunn María Jónsdóttir
Guðbjörg ÍvarsdóttirHljóð
Þorbjörn Steingrímsson
Myndband
Elmar Þórarinsson