Köttur á heitu blikkþaki
- Litla sviðið
- Verð: 7.800
- Væntanleg
Köttur á heitu blikkþaki
Tímalaus klassík Tennessee Williams í leikstjórn Þorleifs Arnar
Í þessu meistaraverki Tennessee Williams kemur fjölskylda saman til að fagna stórafmæli föðurins, en þegar líða tekur á kvöldið er fögnuðurinn fljótur að snúast upp í andhverfu sína. Erfðadeilur, sálarflækjur og kynferðisleg spenna leiða persónur verksins á tilfinningaleg jarðsprengjusvæði, þar sem baráttan fyrir tilverunni, frelsinu og sannleikanum tekur yfir. Hvað erum við tilbúin að gera til að horfast ekki í augu við raunveruleikann?
Þorleifur Örn er þekktur fyrir umfangsmiklar sýningar og listræn stórvirki, en í þetta sinn tekst hann á við sígilt verk með innilegri nálgun og þaulreyndum leikhópi. Þetta magnaða verðlaunaverk hefur aðeins einu sinni áður verið
sett á svið í atvinnuleikhúsi á Íslandi en um fádæma vinsældir þess þarf ekki að fjölyrða.
Leikarar
- Ásthildur Úa Sigurðardóttir
- Halldór Gylfason
- Hákon Jóhannesson
- Heiðdís Hlynsdóttir
- Hilmir Snær Guðnason
- Jörundur Ragnarsson
- Katla Margrét Þorgeirsdóttir
- Sigurður Ingvarsson
Listrænir stjórnendur
Höfundur
Tennessee Williams
Þýðing
Jón St. Kristjánsson
Leikstjóri
Þorleifur Örn Arnarsson
Leikmynd og búningar
Erna MistLýsing
Gunnar Hildimar Halldórsson
Hljóðmynd
Ísidór Jökull Bjarnason