Kvöldstund með Heiðari snyrti
- Litla sviðið
- Verð: 7600
- Frumsýning 19. janúar 2024
- Væntanleg
Kvöldstund með Heiðari snyrti
Í nýju og brakandi fersku verki eftir höfuðleikskáld okkar Íslendinga, Tyrfing Tyrfingsson, er Heiðar snyrtir aðalsöguhetjan. Það er aðfangadagskvöld jóla og hjónaleysin Lúna og Ingi sitja heima og vilja helst vera einhvers staðar allt annars staðar. Þegar barið er að dyrum er þar hvorki kominn andi jólanna né jólasveinninn heldur Heiðar snyrtir sem á erindi við Inga.
Eins og allir vita sem þekkja til verka Tyrfings er enginn honum fremri þegar kemur að því að skapa persónur, samtöl og aðstæður sem skera inn að hjarta, vekja hlátur en eru um leið svo óbærilegar að þær valda jafnvel líkamlegum óþægindum. Persónur hans eru gjarnan á skjön við samfélagið, tilheyra hópi sem oft kallast jaðraður, en eru þegar nánar er að gáð fyrst og fremst breyskar manneskjur – stundum bara aðeins lélegri í að fela breyskleika sína en við hin.
Kvöldstund með Heiðari snyrti er áttunda leikrit Tyrfings Tyrfingssonar og það sjötta sem sýnt er í Borgarleikhúsinu, en auk þess var Tyrfingur annar höfunda handrits kvikmyndarinnar vinsælu Villibráð. Þeir Stefán Jónsson, leikstjóri, leiða nú saman hesta sína í þriðja sinn.
Leikarar
Ásthildur Úa Sigurðardóttir
Hilmir Snær Guðnason
Sigrún Edda Björnsdóttir
Sigurður Þór Óskarsson
Listrænir stjórnendur
Höfundur
Tyrfingur TyrfingssonLeikstjórn
Stefán JónssonLeikmynd
Börkur JónssonBúningar
Helga I. StefánsdóttirLýsing
Gunnar Hildimar HalldórssonTónlist og hljóðmynd
Ísidór Jökull BjarnasonLeikgervi
Elín S. Gísladóttir