Borgarleikhúsið

Kvöldvaka með Jóni Gnarr

  • Litla sviðið
  • 2 klst. og 15 mín, eitt hlé
  • Verð: 6.750 kr.
  • Sýningum lokið
  • Sýningum á Kvöldvaka með Jóni Gnarr er lokið. Við þökkum fyrir góðar viðtökur.
  • Kaupa kort

Jón Gnarr stígur á svið í Borgarleikhúsinu í janúar með nýja sýningu þar sem áhorfendum gefst tækifæri til að heyra sannar en lygilegar sögur frá hans ferli. Fáir segja sögur eins og hann og enn færri hafa frá jafn mörgu að segja. 

Kvöldvaka með Jóni Gnarr

Sannar en lygilegar sögur!

Jón Gnarr steig á svið í Borgarleikhúsinu í janúar síðast liðinn með nýja sýningu þar sem áhorfendum gefst tækifæri til að heyra sannar en lygilegar sögur frá hans ferli. Fáir segja sögur eins og hann og enn færri hafa frá jafn mörgu að segja. Hann hefur komið víða við með Tvíhöfða, Fóstbræðrum, sem grínisti, rithöfundur og auðvitað sem borgarstjóri Reykjavíkur svo eitthvað sé nefnt.

Á Kvöldvökunni segir sagnamaðurinn Jón sögur af lífi sínu og má með sanni segja að sumt af því sem hann hefur upplifað er alveg hreint lygilegt. Meðal þess er þegar hann var afklæddur á hommaklúbbi í New York, þegar hann átti notalegt spjall við íslenskan nasista sem hitti Hitler, apakött sem kom til Íslands og maðurinn sem hélt að Jón væri Lýður Oddsson

Það er alveg víst að engin Kvöldvaka með Jóni verður nákvæmlega eins. Hvert kvöld verður einstök upplifun þar sem sagnahefðin og frásagnargleðin mun ráða ríkjum. Sumar sögurnar hafa einhverjir heyrt hann segja í útvarpinu en flestar hafa aldrei heyrst áður.