Borgarleikhúsið

Sex í sveit

  • Stóra sviðið
  • 2 klst. og 30 mín
  • Verð: 6.950 kr.

S.J. Fréttablaðið

Hjónakornin Benedikt og Þórunn skella sér í bústaðinn í Eyjafirði en hvort með sitt leyndarmálið í farteskinu. 

Sex í sveit

Hjónakornin Benedikt og Þórunn skella sér í bústaðinn í Eyjafirði en hvort með sitt leyndarmálið í farteskinu. Hann hugsar sér gott til glóðarinnar þegar hún hyggur á heimsókn til móður sinnar og býður bæði viðhaldinu og vini sínum til veislu en allt í einu snýst eiginkonunni hugur og ákveður án fyrirvara að vera um kyrrt. Þá hitnar hratt í kolunum og þegar veisluþjónustan bætist í hópinn ætlar beinlínis allt um koll að keyra. Hver bauð hverjum í mat og til hvers? Hver er að halda við hvern og af hverju? Og hvað er veisluþjónustan að bjóða upp á í raun og veru?

Þessi sprenghlægilegi og vinsæli gamanleikur hefur farið algjöra sigurför um heiminn og lagt London, París, New York og Reykjavík að fótum sér. Gísli Rúnar og Bergur Þór hafa uppfært og tímastillt verkið upp á nýtt til að kitla hláturtaugarnar enn meira.


Upp í bústað

Gagnrýni

Hér er á ferðinni strangheiðarleg útfærsla á klassískum farsa sem heppnast nákvæmlega eftir uppskriftinni.

S.J. Fréttablaðið

Blessunarleg hlátursprengja nú sem fyrr.

S.A. TMM


Leikarar

  • /media/leikarar/img_0014abw.jpgHaraldur Ari Stefánsson
  • Jörundur Ragnarsson
  • Rakel Björk Björnsdóttir
  • /media/leikarar/sigurdur-thor-web.jpgSigurður Þór Óskarsson
  • Sólveig Guðmundsdóttir
  • /media/leikarar/img_0055abw.jpgVala Kristín Eiríksdóttir

Listrænir stjórnendur

  • Höfundur

    Marc Camoletti

  • Íslenskun

    Gísli Rúnar Jónsson

  • Leikstjórn

    Bergur Þór Ingólfsson

  • Leikmynd

    Petr Hlousek

  • Búningar

    Stefanía Adolfsdóttir

  • Lýsing

    Þórður Orri Pétursson

  • Leikgervi

    Guðbjörg Ívarsdóttir

  • Hljóð

    Þorbjörn Steingrímsson