Borgarleikhúsið

Núna 2019

  • Litla sviðið
  • 2 klst. og 45 mín, tvö hlé
  • Sýningum lokið
  • Sýningum á Núna 2019 er lokið. Við þökkum fyrir góðar viðtökur.
  • Kaupa kort

Núna 2019

Núna er ekki á morgun, það er NÚNA …

Síðastliðinn vetur fór Borgarleikhúsið aftur af stað með verkefni sem kallast NÚNA 2019. Leitað var til sex ungra höfunda um hugmyndir að 30 mínútna leikritum og urðu þrjár kraftmiklar og spennandi hugmyndir fyrir valinu. Höfundar þeirra eru Hildur Selma Sigbertsdóttir, Matthías Tryggvi Haraldsson og Þórdís Helgadóttir. Verk þeirra hafa síðan verið þróuð áfram í samvinnu við dramatúrga Borgarleikhússins og leikstjóra verkefnisins, Kristínu Jóhannesdóttur og verða sýnd saman á einu kvöldi.

Höfundarnir fylgja í fótspor Tyrfings Tyrfingssonar, Kristínar Eiríksdóttur og Sölku Guðmundsdóttur sem ruddu brautina með NÚNA 2013 og hafa skipað sér í framvarðarsveit íslenskra leikskálda. 

Verkin

Sumó

eftir Hildi Selmu Sigbertsdóttur

Finnst ekki öllum kósí að skreppa aðeins upp í bústað eftir erfiða vinnuviku? Skipta um umhverfi. Henda einhverju góðu á grillið og slaka á.Það er bara eitthvað svo næs við að kíkja upp í sumó. Eða hvað?

Hildur Selma útskrifaðist af sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands vorið 2018.

Stóri Björn

eftir Matthías Tryggva Haraldsson

Stóri Björn er einbúi í heimi þar sem persónurnar heita furðunöfnum og kakkalakkar spyrja hvort seríósskálin á sviðinu sé mastersgráða, klámspóla eða „spirituality“.

Matthías Tryggvi útskrifaðist af sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands vorið 2018 

Þensla

eftir Þórdísi Helgadóttur

Agnes er búin að fylla stofuna af hitalömpum og rakatækjum. En það er samt ekki út af þessu sem Egill er að skilja við hana.

Þórdís Helgadóttir er menntuð í heimspeki, ritlist og ritstjórn í Háskóla Íslands og hefur starfað við ritstörf af ýmsu tagi.  Stikla
  • /media/nuna-2019/20190103-_dsc7333.jpg
  • /media/nuna-2019/20190103-_dsc7554.jpg
  • /media/nuna-2019/20190103-_dsc7450.jpg
  • /media/nuna-2019/20190103-_dsc7934.jpg
  • /media/nuna-2019/20190103-_dsc7791.jpg
  • /media/nuna-2019/20190104-_dsc0526.jpg
  • /media/nuna-2019/20190103-_dsc9005.jpg
  • /media/nuna-2019/20190104-_dsc1203.jpg
  • /media/nuna-2019/20190103-_dsc9217.jpg

Gagnrýni

Áhorfandinn fer endurnærður út úr leikhúsinu og hlakkar til að fara í næsta skipti.

SJ. Fréttablaðið.

Þrátt fyrir ólíkan efnivið tókst með útpældri sviðsumgjörð og öguðum leikstíl undir styrkri stjórn Kristínar Jóhannesdóttur að skapa heildstæða kvöldstund þar sem ljósi var varpað á unga og efnilega höfunda.

SBH. Morgunblaðið.


Leikarar

  • Ebba Katrín Finnsdóttir
  • Haraldur Ari Stefánsson
  • Vala Kristín Eiríksdóttir
  • Þuríður Blær Jóhannsdóttir
  • https://www.borgarleikhus.is/media/leikarar/img_0282abw.jpgHannes Óli Ágústsson
  • /media/leikarar/katla-margret.jpgKatla Margrét Þorgeirsdóttir

Listrænir stjórnendur

  • Höfundar

    Hildur Selma Sigbertsdóttir
    Matthías Tryggvi Haraldsson
    Þórdís Helgadóttir

  • Leikstjórn

    Kristín Jóhannesdóttir

  • Leikmynd og búningar

    Stígur Steinþórsson

  • Lýsing

    Þórður Orri Pétursson

  • Tónlist

    Garðar Borgþórsson