Borgarleikhúsið

Rómeó ❤️ Júlía

  • Stóra sviðið
  • Íslenski dansflokkurinn
  • 2 klst., eitt hlé
  • Verð: 6.950 kr.
  • Sýningum lokið
  • Sýningum á Rómeó ❤️ Júlía er lokið. Við þökkum fyrir góðar viðtökur.
  • Kaupa miða Panta mat

Dansverk eftir Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur við tónlist Sergeis Prokofievs.

Rómeó ❤️ Júlía

Íslenski dansflokkurinn

Dansverk eftir Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur við tónlist Sergeis Prokofievs.

Íslenski dansflokkurinn færir okkur Rómeó ❤️  Júlíu, stórbrotið dansverk Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur í túlkun dansara Íslenska dansflokksins. Um er að ræða frumflutning verksins á Íslandi.

RÓMEÓ ❤️  JÚLÍA var upphaflega skapað í samstarfi við dansara Gärtnerplatz leikhússins í München og frumsýnt árið 2018 en er nú endurskapað í samvinnu við dansara Íslenska dansflokksins. Sígildur harmleikur Shakespeares er rækilega afbyggður og brotinn niður í fjölmargar frásagnir sem gerast samhliða svo úr verður veröld full af lostafullri þrá, líkamsvessum og logandi eldtungum, særingarmætti öskursins og heilandi ást – undir skæru og neonlituðu hjarta. Saman við renna ævintýraleg sviðsmynd og búningar, mögnuð vídeóverk og stórkostleg tónlist Sergeis Prokofievs svo úr verður sýning sem lætur enga ósnortna.

Gagnrýni

„Sýningin er hugrökk, dásamleg, þokkafull og óhugnaleg. Sigur fyrir hina fullkomlega óhræddu íslendinga”

BR Klassik

„Aldrei áður hefur danssýning hrakið, heillað og ruglað mig allt á sama tíma. Mig langaði bara að fara heim á milli, en var dolfallinn af athöfnunum á sviðinu.”

Kassik Begeistert

„Rómeó ❤️ Júlía rennur yfir undirlag meðvitundar – eins og blóðugur lækur sem finnur leið sína í sjóinn”

Munich and co.


Listrænir stjórnendur

  • Danshöfundar og listrænir stjórnendur

    Erna Ómarsdóttir
    Halla Ólafsdóttir

  • Tónlist

    Sergei Prokofiev
    Skúli Sverrisson

  • Sviðsmynd

    Chrisander Brun

  • Myndband

    Valdimar Jóhannsson

  • Búningar

    Karen Briem
    Sunneva Ása Weishappel

  • Lýsing

    Fjölnir Gíslason
  • Dansarar

    Ásgeir Helgi Magnússon
    Charmene Pang
    Emilía Benedikta Gísladóttir
    Erna Gunnarsdóttir
    Félix Urbina Alejandre
    Saga Sigurðardóttir
    Shota Inoue
    Sigurður Andrean Sigurgeirsson
    Una Björg Bjarnadóttir
    Védís Kjartansdóttir