Rómeó ❤️ Júlía
- Stóra sviðið
- Íslenski dansflokkurinn
- 2 klst., eitt hlé
- Verð: 6.950 kr.
- Sýningum lokið
Dansverk eftir Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur við tónlist Sergeis Prokofievs.
Rómeó ❤️ Júlía
Íslenski dansflokkurinn
Dansverk eftir Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur við tónlist Sergeis Prokofievs.
Íslenski dansflokkurinn færir okkur Rómeó ❤️ Júlíu, stórbrotið dansverk
Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur í túlkun dansara Íslenska dansflokksins.
Um er að ræða frumflutning verksins á Íslandi.
RÓMEÓ ❤️ JÚLÍA var upphaflega skapað í samstarfi við dansara Gärtnerplatz leikhússins í München og frumsýnt árið 2018 en er nú endurskapað í samvinnu við dansara Íslenska dansflokksins. Sígildur harmleikur Shakespeares er rækilega afbyggður og brotinn niður í fjölmargar frásagnir sem gerast samhliða svo úr verður veröld full af lostafullri þrá, líkamsvessum og logandi eldtungum, særingarmætti öskursins og heilandi ást – undir skæru og neonlituðu hjarta. Saman við renna ævintýraleg sviðsmynd og búningar, mögnuð vídeóverk og stórkostleg tónlist Sergeis Prokofievs svo úr verður sýning sem lætur enga ósnortna.
Listrænir stjórnendur
Danshöfundar og listrænir stjórnendur
Erna Ómarsdóttir
Halla ÓlafsdóttirTónlist
Sergei Prokofiev
Skúli SverrissonSviðsmynd
Chrisander Brun
Myndband
Valdimar Jóhannsson
Búningar
Karen Briem
Sunneva Ása WeishappelLýsing
Fjölnir GíslasonDansarar
Ásgeir Helgi Magnússon
Charmene Pang
Emilía Benedikta Gísladóttir
Erna Gunnarsdóttir
Félix Urbina Alejandre
Saga Sigurðardóttir
Shota Inoue
Sigurður Andrean Sigurgeirsson
Una Björg Bjarnadóttir
Védís Kjartansdóttir