Borgarleikhúsið

Skattsvik Development Group

  • Verð: 2.500 kr
  • Frumsýning 12. mars 2020
Hver er þessi maður sem neitar að stíga til hliðar? Sem telur sig svo nauðsynlegan samfélaginu að ekkert má steypa honum af stalli hans?

Skattsvik Development Group

Sjálfstæði sviðslistahópurinn Ást og karóki hefur undanfarnar vikur starfað innan veggja Borgarleikhússins undir því yfirskyni að meðlimir hópsins séu að skapa nýja íslenska sýningu um skaðlega karlmennsku. Umfangsmikill gagnaleki sýnir að hópurinn hefur þess í stað grætt umtalsverðar fjárhæðir á því að svíkja undan skatti. Milljónir króna sem Borgarleikhúsið greiðir fyrir sýninguna enda í leynilegri bankabók í Sankti Lúsíu í krafti tvísköttunarsamninga, aflandsfélaga, meintrar ráðgjafaþjónustu í Panama og fyrirtækisins Skattsvik Development Group í Dublin.

Meðlimir Ást og karókí:
Adolf Smári Unnarsson, hluthafi
Birnir Jón Sigurðsson, formaður stjórnar, hluthafi
Friðrik Margrétar- Guðmundsson, hluthafi
Matthías Tryggvi Haraldsson, hluthafi
Stefán Ingvar Vigfússon, hluthafi

Höfundur:
Skattsvik Development Group Limited
57 Amiens Street, Dublin 1
IRELAND