Útskriftarsýning JSB
- Nýja sviðið
- Verð: Frítt
- Sýningum lokið
Útskriftarsýning JSB
Útskriftarsýning og útskrift af Listdansbraut JSB
Um er að ræða metnaðarfulla listdanssýningu þar sem sýnd verða frumsamin dansverk eftir útskriftarnema af Listdansbraut JSB. Verkin urðu til í vetur í lokaáfanga nemenda í danssmíðum en unnið var að verkunum undir handleiðslu Irmu Gunnarsdóttur og Þórunnar Ylfu Brynjólfsdóttur.
Auk útskriftarverka nemenda verður frumsýnt glænýtt dansverk eftir Þórunni Ylfu Brynjólfsdóttur danshöfund en verkið var samið í samstarfi við útskriftarhópinn á vorönn. Að sýningu lokinni fer fram útskriftarathöfn á sviði.
Frítt er á sýninguna en nauðsynlegt er að panta sér miða.
Góða skemmtun!