Borgarleikhúsið

Bergur Þór Ingólfsson

Bergur Þór Ingólfsson útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1995. Hann hefur verið fastráðinn við Borgarleikhúsið síðan árið 2000 og leikið þar fjölmörg hlutverk. Bergur hefur einnig getið sér gott orð sem leikskáld og leikstjóri og hefur leikstýrt fjölda stórsýninga svo sem Mary Poppins, Billy Elliot, Matthildi og nú síðast Deleríum búbónis. Bergur á einnig að baki mörg hlutverk í kvikmyndum og sjónvarpi og hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín.