Borgarleikhúsið

Hilmir Snær Guðnason

Hilmir Snær Guðnason útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1994 og hefur síðan leikið fjöldamörg hlutverk á flestum sviðum landsins auk þess að eiga að baki farsælan feril í kvikmyndum og sjónvarpi. Hilmir hefur síðustu ár stafað jöfnum höndum sem leikari og leikstjóri og leikstýrði síðast Teprunum í Borgarleikhúsinu auk þess sem hann fór með hlutverk í Mátulegum. Hilmir hefur hlotið fjöldamörg verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín svo sem Grímuna, Edduna, Menningarverðlaun DV og Stefaníustjakann.