Borgarleikhúsið

Þorsteinn Bachmann

Þorsteinn Bachmann útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1991 og hefur síðan leikið á þriðja tug hlutverka í leikhúsi, meðal annars hjá Leikfélagi Akureyrar, Leikfélagi Reykjavíkur og Alþýðuleikhúsinu. Á meðal verka sem Þorsteinn hefur leikið í hjá Borgarleikhúsinu eru Sölumaður deyr, Emil í Kattholti og Fyrrverandi. 
Hann hefur farið með hlutverk í fjölmörgum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum og hlotið þrenn Edduverðlaun.