Egill Andrason tók saman

7:3 OG MALEXANDER-MORÐIN

Norén var framsækinn listamaður sem þandi hið hefðbundna leikhúsform með margvíslegum hætti. Á seinni hluta ferils síns sótti hann í auknum mæli efnivið til fólks á jaðri þjóðfélagsins; sem dæmi til flóttamanna, fíkniefnaneytenda og heimilislauss fólks. Frægasta dæmið um þetta er verkið 7:3. Það verk var byggt á ítarlegum viðtölum Noréns við þrjá fanga úr Tidaholmsfangelsinu sem léku síðan sjálfa sig í sýningunni. Titillinn 7:3 vísar til ákvæðis í sænskum hegningarlögum um sérstaklega hættulega fanga. Sýningin var frumsýnd í fangelsinu en ferðaðist svo um Svíþjóð á vegum Riksteatern (þar sem Norén vann sem listrænn stjórnandi).

Verkið varð afar umdeilt, ekki síst vegna þess að tveir þátttakendanna viðruðu óspart nýnasískar skoðanir sínar á sviðinu án þess að verkið tæki skýra afstöðu gegn hugmyndafræði þeirra. Því töldu margir sýninguna ýta undir nasískan áróður – en öðrum þótti hún ögrandi og þörf áminning um samfélagslegan veruleika Svíþjóðar.

Verkefnið hófst sem eins konar meðferðar-tilraunaverkefni fyrir þátttakendurna og leyfðu fangelsisyfirvöld leikurum sýningarinnar reglulega að yfirgefa fangelsið vegna æfinga eða sýninga. Þegar leið á ferlið fengu fangarnir sífellt aukið frelsi og gistu jafnvel utan veggja fangelsisins.

Þann 28. maí 1999, daginn eftir lokasýningu 7:3, fékk einn leikari sýningarinnar enn eitt dagsleyfið frá fangelsinu. Í leyfinu framdi hann bankarán ásamt öðrum glæpamönnum. Í flótta undan lögvaldinu urðu þessir sakamenn tveimur lögreglumönnum, Olle Borén og Robert Karlström, til bana. Morðin áttu sér stað við þorpið Malexander og urðu síðar þekkt sem Malexander-morðin. Í kjölfarið beindist hörð gagnrýni bæði að sænskum fangelsisyfirvöldum og leikhúsverkefninu sjálfu. Morðin urðu eitt alræmdasta sakamál Svíþjóðar síðari tíma og eftirmálar þeirra fylgdu Norén út ævina.

Nóren missti þó ekki trúna á lækningamætti leikhússins og heimsótti tvo leikarana í fangelsið nokkru eftir Malexander-morðin. Samkvæmt honum hafði leikhúsið breytt þeim til hins betra: „Ég veit ekki hvort það á sér nokkra stoð í raunveruleikanum en ég hafði það á tilfinningunni að þeir hefðu sagt skilið við nasismann, þeir hefðu gert upp hugmyndafræðina sem slíka. Ég held að þeir hafi breyst við það að leika í sýningunni. En við verðum að bíða og sjá hverju framvindur. Nú reyni ég að fá meiri fjarlægð á tilveruna, standa ekki of nærri því sem er að gerast í þjóðfélaginu. Ég er ákaflega upptekinn af eilífðarmálunum: dauðanum, ástinni, minninu, tímanum, fallvaltleika lífsins”

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo